create your own visited country map
or check our Venice travel guide
Frakkar voru bara mjög kurteisir og hjálpsamir þótt við kynnum ekki stakt orð í frönsku. Eina sem ég kann að segja er merci beaucoup (mer-see boh-koo) og bonjour. París er líka mjög falleg og rómó borg, minnti mig dálitið á Barcelona.
Við vorum svakalega heppin með veður og hótelið var líka mjög snyrtilegt og fínt. Hótelið sem við gistum á var í 9. hverfi á rue Fauburg Montamare. og við gengum á hótelið frá Gare Du Nord lestarstöðinni. Reyndar gengum við mest allt sem við fórum, enda var ég orðin ansi þreytt í fótunum.

Fyrsta dagin heilsuðum við uppá Mónu Lísu og Venus í Louvre safninu.

Daginn eftir fórum á Pompidou safnið

og skoðuðum Eiffel turninn.

Síðasta daginn fórum við að sjá Sigurbogann, Arc de Triomphe

og klifruðum uppí hann líka.
En við tókum fullt af myndum ef þið viljið sjá.
Hlökkum mikið til að fá ykkur í heimsókn. Róm er ekki síður róm-ó en París. Þó að pompidúú safnið verði seint slegið út.
SvaraEyðaLuna afrekaði rétt í þessu að pissa á mig! Já, hún var bleyjulaus.
Ha ha... þessi börn ;)
SvaraEyðaVið hlökkum líka til að sjá ykkur!