þriðjudagur, ágúst 16, 2005

Helgarferð og ný íbúð

Mamma og Katrín litla systir eru í heimsókn hjá okkur, komu síðasta sunnudag. Um helgina fórum við og fengum bíl til leigu, sem var mikklu ódýrara en við bjuggumst við. Við keyrðum (réttara sagt Sindri keyrði – og í fyrsta skipti í vinstri-umferð) fyrst til Stonehenge og skoðuðum það í hellidembu. Keyrðum svo til Salisbury og skoðuðum okkur smá um og fengum okkur kvöldmat. Við Sindri skoðuðum bæði Stonehenge og Salisbury í fyrrasumar en vorum ekki svona óheppin með veðrið þá. Svo keyðum við til Bournemouth og ætluðum að finna okkur gistingu þar en ekkert hótel var að fá svo við ákváðum að keyra bara aftur til London og fara aftur af stað næsta morgun. Ætlunin var að fara til Bournemouth á ströndina daginn eftir en það var ekki útlit fyrir strandarveður svo að við ákváðum að skella okkur í Legoland í staðinn. Legoland var rosalega skemmtilegur staður, fórum í nokkra rússíbana og svoleiðis, veðrið var líka fínt, þótt það hafi alveg mátt vera betra.

Annars er annað í fréttum að við erum búin að finna okkur íbúð í Borough og flytjum 1. september, og þið eruð velkomin í heimsókn þangað líka. Og ég byrja í 3 vikna undirbúningsnámi í ensku á morgun, lista- og hönnunartengt, 3 tíma á dag, áður en skólinn byrjar í september.

Myndir frá Noregsferð og fleirra er væntanlegt, vonandi get ég gefið mér tíma í næstu viku.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ gott að þið höfðuð tækifæri á að ferðast aðeins með mömmu þinni, er Lególand nálægt ykkur?
Hvernig íbúð fenguð þið ?
Sendið nýja heimilisfangið til mín á @
mitt.
Hlakka til að sjá myndirnar !

Það var frábært í Kaupmannahöfn sól og hiti, og borgin er frábær.
kveðja
Alda Björk

þriðjudagur, 23. ágúst 2005 kl. 16:25:00 GMT+1  
Anonymous Nafnlaus said...

HÆ Solla systa
mér fannst gaman í legolandi meðm þér, mömmu og sindra væri gaman að fara aftur!!!
sjámst
kv kata (Katrín)

miðvikudagur, 26. apríl 2006 kl. 20:28:00 GMT+1  
Anonymous Nafnlaus said...

Anonymous said...

HÆ Solla systa
mér fannst gaman í legolandi meðm þér, mömmu og sindra væri gaman að fara aftur!!!
sjámst
kv kata (Katrín)

miðvikudagur, 26. apríl 2006 kl. 20:33:00 GMT+1  

Skrifa ummæli

<< Home