3-0-létt
Nú er kella orðin 30 ára – og með stóra kúlu á maganum í þokkabót. Ég hef verið beðin um bumbumyndir í margar vikur núna og loksins kemur hún.
Ég nenni ekki að afsaka bloggleysi enda hefur varla neinn kvartað yfir því heldur. Þrátt fyrir bloggleysið þá hefur ýmislegt skemtilegt gerst hjá mér. Fyrir utan óléttuna er ég er ekki lengur fröken heldur frú. Það fór ekki mikið fyrir þessum merka atburði í lífi mínu en ég get þó allavega deilt með ykkur myndunum ;)
Daginn eftir fórum við í smá brúðkaupsferð til Gibraltar, gistum þar á hóteli í 3 daga áður en við fórum á 6 daga Compitent Crew siglingarnámskeið sem við vorum búin að bóka okkur á, en það var líka í Gibraltar.
Dagur 1. Siglt í Gibraltar.
Dagur 2. Siglt til Sotogrande, Spáni.
Dagur 3. Siglt til Ceuta, tangi á Afriku sem tilheyrir Spáni.
Dagur 4. Siglt til Smir, Morocco.
Dagur 5. Siglt aftur til Ceuta.
Dagur 6. Sigldum í 7 vindstigum á motor aftur til Gib.
Var að byrja á nýju prjóna verkefni – lítil og sæt peysa á dýrið.
3 Comments:
ok, hvar á að byrja?
til hamingju með erfingjann, til hamingju með giftinguna og til hamingju með öll þrjátíu árin!!!
allt að gerast greinilega ;)
guðjón
Það er greinilega allt eða ekkert hérna hjá okkur :)
Var að stelast hérna inn hjá þér og kíkti á myndir og alles.
Ekkert smá sætur litli prinsinn. Til hamingju með hann:) Kom hann e-ð f. tímann? Svo agalegt að sjá svona lítið kríli með slöngur:(
Skrifa ummæli
<< Home