föstudagur, nóvember 05, 2004

5th of November

Ég ákvað að láta Data Recovery bjarga diskinum þrátt fyrir allt. Þegar ég sagði þeim að ég ætlaði að taka diskinn án þess að láta þau bjarga gögnunum vildu þau nottla ekki missa viðskiptin og buðu mér að gera þetta fyrir lægsta verð, sem er samt ógeðslega mikið. En ég er þá búin að fá gögnin sem ég hélt að væri glötuð og þarf ekki að vinna upp layoutin fyrir Lailu.

Bogga hringdi í mig í dag! Hún var á Stansted á leiðinni til Barcelona og svo kemur hún í heimsókn til mín á miðvikudaginn og verður fram á mánudag. Hlakka til að sjá hana.

Í dag er Bonfire Night í Bretlandi, allir að skjóta upp flugeldum. Wee!

1 Comments:

Blogger Skoffínið said...

Ég flaug einu sinni yfir London á Bonfire Night og ég verð nú bara að segja að það sem bretar kalla flugelda er bara prump!!! Pínkulítið gos úti í garði og nokkur stjörnuljós. Mér fannst það allavega ekki nærri eins brjálæðislegt og hjá okkur klikkdýrunum á klakanum - en hey enginn toppar það. En hvernig var kvöldið annars?

fimmtudagur, 11. nóvember 2004 kl. 09:25:00 GMT  

Skrifa ummæli

<< Home