þriðjudagur, apríl 19, 2005

27 ára!

Í gær varð ég einu ári eldri en ég var í fyrradag. Var með matarboð í tilefni dagsins og var með Herdwick lambalæri í matinn, sem ég og Laila fundum á Borough Market. Laila kom til mín fyrr um daginn og hjálpaði mér að elda. Maturinn heppnaðist mjög vel, kjötið var alveg einsog Íslenskt læri og sósan varð góð. Sósubréfin voru sem sagt ekki notuð sem voru keypt ef ske kynni að sósan misheppnaðist. Í mat komu Lúlli (og Laila auðvitað), Soffía, Gauti og ég þarf auðvitað ekki að nefna Sindra. Takk fyrir mig.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að heyra hvað þú áttir góðan afmælisdag Solla mín.
Ég óska þér góðs gengis, og vona að þú komist í nám í þeim skóla sem þig langar mest.
Alda Björk

miðvikudagur, 20. apríl 2005 kl. 10:04:00 GMT+1  

Skrifa ummæli

<< Home