Allt að gerast
Var rétt í þessu að fá póst, afmælis pakka frá tengdó. Í honum var risa kort af Noregi, travel guide bók um Noreg og diskur með Emelíönu Torrini, hlakka til að hlusta á hann. Takk fyrir mig!! svo fékk ég líka bréf frá Camberwell. Þau voru pleased to provide me with a place on the full time course. Skemmtilegt! en ég hef 21 dag til að ákveða mig – á ennþá eftir að heyra frá Saint Martins.
1 Comments:
Frábært til hamingju, með að fá jákvætt svar frá þessum listaháskóla !
Hvernig nám er þetta , ef þú færir í það ? hvað langt ? kostar hvað ? hvar er skólinn, langt að fara?
Vona að kortið góða og ferðabókin geri ferðalagið til föðurlandsins ennþá skemmtilegra, njóttu vel elsku Solla mín.
Alda Björk
Skrifa ummæli
<< Home