fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Þvílíkt bull...

Það lítur út fyrir að ég þurfi ekki að vakna klukkan sex á morgnana lengur, fyrir utan á morgun. Mér var sagt að ég fengi ekki vinnuna af því að annar eiganndinn fannst ég ekki nógu glaðleg og brosandi. Þvílíkt bull... mér er sama! ..og þó ekki. Það var hund leiðinlegt að vinna þarna, ég get huggað mig við það. Ég hékk þarna til dæmis í dag frá átta til tvö og enginn kúnni. Það mesta sem hefur komið inn á einum degir eru sex manns. Maður verður bara heiladauður af því að vinna á svona stað. Svo mátti maður ekki einu sinni spila kapal í tölvunni, til að koma smá heilastarfsemi af stað.

1 Comments:

Blogger Solla said...

þetta var kannski heldur neikvætt.. en ég var bara dálitið sár, skil bara ekkert í þessu. En samt fegin.
Ég finn eitthvað.

...don't worry, be happy!!

föstudagur, 11. febrúar 2005 kl. 16:09:00 GMT  

Skrifa ummæli

<< Home