Jólin eru að koma og við líka
Þá erum við Sindri loksins búin að kaupa allar jólagjafir og pakka inn. Skólinn hjá mér búinn í bili, en verð þó að skrifa ritgerð sem ég þarf að skila í janúar og vonandi klára hana fyrir fimmtudag en sé það ekki alveg gerast. Lendum á Klakanum seint að kvöldi fimmtudags og vonumst til að hitta sem flesta yfir hátíðarnar.