sunnudagur, júlí 23, 2006

aumingja dúfan...

Núna er vika síðan skólinn kláraðist. Ég var búin að leggja undir mig alla stofuna sem vinnustofu og núna er kominn tími til að setja hluti á sinn stað og þrífa. Ég er að verða búin en það er búið að ganga mjög hægt. Það er bara of heitt til að gera húsverk! – maður gerir allt á hálfum hraða. Ég tók mig til og þreif glugga og spegla í íbúðinni, og það tókst það vel að ein dúfan hélt að hún gæti bara flogið beint inn af svölunum og klessti á rúðuna... mjÖg fyndið.

Helga er komin og farin, er núna í Köben að heimsækja aðra vini. Ég er svo búin að bæta inn fleirri myndum frá heimsókninnni og loka sýningunni. Næst í heimsókn eru svo Davíð bróðir minn og kærastan hans, þau koma 1. ágúst og verða í tvær vikur.

fimmtudagur, júlí 06, 2006

Helga kom með mér í skólann í gær og hjálpaði mér við að hengja upp verkefnið mitt og tók nokkrar myndir af skólafélögunum að vinna. Í dag var yfirferð og tekið viðtöl við hvern og einn til að meta okkur. Þetta gekk allt saman mjög vel þrátt fyrir mikið stress og það kom fyrir að einhverjir felldu tár, en það er allt búið núna. Núna er bara að bíða eftir einka-sýningunni.