
Var að klára að lesa bókina "Þú átt nóg af peningum ...þú þarft bara að finna þá!" eftir Ingólf H. Ingólfsson og mér finnst í alvörunni að ég eigi eftir að verða geðveikt rík eftir að hafa lesið hana. Bókin útskýrir hvernig megi
spara með því að eyða peningum – sem sagt eyða í sparnað. Hvernig maður borgar niður skuldir hraðar en ella og sparar þannig milljónir í vexti til langs tíma. Einnig talar bókin um hvernig eigi að skipta útgjaldaliðum heimilisins í þrjá flokka: skuldir, neyslu og sparnað. Sparnaður er auðvitað útgjaldaliður númer eitt. Ef þú ert ein(n) af þeim sem veist ekki í hvað peningarnir fara muntu ekki taka eftir því hvort þú eyðir 10% af laununum þínum í sparnað eða ekki. Svo fylgir veflykill með bókinni sem veitir aðgang að veltukerfinu á
spara.is sem ég ætla að kíkja á fljótlega. Check it and you will become rich!
Tala nú ekki um þegar ég er búin að lesa "
Getting Things Done" þá verð ég rík OG skipulögð.
Nördinn ég hef líka gaman að handavinnu og keypti ég mér
þessa hekl bók á amazon með fullt af skemmtilegur mynstrum.
Efnisorð: bækur, cameraphone